Facebook
Facebook
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Talið er að Indland verði næst stærsti markaður Facebook á næsta ári eftir því sem símar með aðgang að interneti verða ódýrari. Langflestir Facebook notendur eru í Bandaríkjunum eða um 153 milljónir manns. Þar á eftir kemur Indónesía með 39,2 milljónir notenda.

Fjöldi virkra notenda á Facebook í Indlandi hefur aukist um 85% í 32 milljónir manns á þessu ári. Búist er við að yfir 50 milljónir manns í Indlandi verði komnir á Facebook á næsta ári.

Auglýsingatekjur á netinu í Indlandi jukust um 26% í 223 milljarða dollara frá mars 2010 til mars 2011.