Í október síðastliðnum fóru rúmlega 184 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll, samkvæmt tölum frá flugvellinum, samanborið við rúmlega 170 þúsund í október í fyrra.

Fjölgunin nemur 8,6% og er í takt við þróun farþegafjölda á árinu í heild en frá áramótum hefur farþegum fjölgað um 8,3%. Tölurnar eru greindar niður eftir því hvort farþegar eru á leið til landsins, frá landinu eða hvort um áfram- og skiptifarþega er að ræða.