Hægt var að fljúga til 70 áfangastaða frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í sumar. Þrátt fyrir það þá var — eins og oft áður hefur verið — mest flogið til Kaupmannahafnar. Þetta kemur fram á vefmiðlinum Túrista.is.
Í heildina var flogið 589 sinnum til Kaupmannahafnar frá Keflavíkurflugvelli í sumar en það gera 6,4 brottfarir á dag til borgarinnar. Þetta er 22,5% fjölgun síðan á sama tíma í fyrra.
Næst mesta flugumferðin var til London, en flogið var til borgarinnar við Thames árbakka 518 sinnum í sumar.
Tekið er fram í fréttinni að vinsældir Danmerkur sé sú að flugvöllurinn í Kaupmannahöfn sé sá stærsti í Norðurlöndunum. Dönskum ferðamönnum hefur hins vegar ekki fjölgað, en hins vegar hefur verið mikil fjölgun á sænskum ferðamönnum til Íslands.
Líklegt að London verði vinsælust á ný
Líklegt er að London komist efst á lista þeirra borga sem flogið er mest til frá Íslandi í haust. Þá munu fimm flugfélög fljúga til borgarinnar. Flugið dreifist þó á fjóra flugvelli í grennd við London, en aðeins einn í Kaupmannahöfn, Kastrup.
Mest var flogið til eftirfarandi borga; Kaupmannahafnar, London, Parísar, New York.