Stjórn Flögu Group hf. (áður Medcare Flaga hf.) hefur tekið ákvörðun um að nýta heimild samkvæmt samþykktum félagsins til hækkunar hlutafjár félagsins um 46.092.457 krónur að nafnverði. Hlutirnir verða afhentir á genginu 6,0 sem árangurstengd greiðsla fyrir hluta af kaupverði bandaríska félagsins SleepTech.

Eftir framangreindar breytingar er hlutafé Flögu Group samtals að nafnverði 716.601.689 krónur.

10 stærstu hluthafar eftir aukningu hlutfjár:

Meidur Holding S.A. 21,8%

Kaupþing Búnaðarbanki hf 9,3%

Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 7,6%

ResMed Inc. 6,7%

Patricia Susan Kab 5,1%

Vyto Kab 5,1%

Bogi Óskar Pálsson 5,1%

Burðarás hf 4,4%

Helmke Ingrid Margret Priess 2,6%

Gunn ehf 2,1%