Síðustu 12 mánuði varð 0,8% aukning í sölu á nautgripakjöti, og þá mest í úrvals- og ungneytaflokkum. Slátrað var 21.890 gripum og gerðu það rétt tæplega 3.600 tonn. Sala og framleiðsla nautgripakjöts dróst hins vegar saman um 3,2% í ágústmánuði á þessu ári, og var mesta fækkunin í flokkum ungkálfa, ungneyta og kúa.

Nautakjötið hefur samt haldið sínu þrátt fyrir mikla söluaukningu á öðrum kjöttegundum. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Landssambands nautgripabænda.