Talsverð aukning hefur orðið í sölu nýrra fólksbíla fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra.

Alls seldust 400 nýir fólksbílar frá áramótum fram til aprílloka á þessu ári, en á sama tímabili í fyrra seldust 349 nýir fólksbílar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bílgreinasamfélaginu en þetta er aukning upp á 14,6% milli ára.

Mest var aukningin í nýliðnum marsmánuði en þá seldust alls 156 nýir fólksbílar á móti 69 í sama mánuði árið á undan, sem gerir viðsnúning upp á liðlega 126%. Í apríl var aukningin um 18%.

Fram kemur að þessi aukning er merki um að tekið sé að lifna yfir bílamarkaðnum sem hefur verið afar daufur síðustu tvö ár. Á þeim tíma hafi meðalaldur bílaflota Íslendinga þó aukist hratt og er hann nú með því hæsta sem gerist í nágrannalöndum okkar, um 10,2 ár á meðan meðalaldur bílaflotans í Evrópusambandinu er 8,5 ár.

Á síðasta ári seldust um það bil 2000 fólksbílar hér á landi en gert er ráð fyrir að um 10.000 til 15.000 nýir bílar þurfi að fara á götuna árlega til að eðlileg endurnýjun eigi sér stað í bílaflota landsmanna.