Samkvæmt Verðsjá Þjóðskrár Íslands seldust alls 228 nýjar íbúðir í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er 15% aukning miðað við á sama tíma í fyrra en fjöldi þinglýstra kaupsamninga alls drógust saman um 31% á höfuðborgarsvæðinu. Landsbankinn greinir frá.

Aukningin í sölu nýbygginga milli ára var mest í miðbæ Reykjavíkur þar sem 43 nýjar íbúðir seldust á öðrum ársfjórðungi í ár samanborið við einungis 11 talsins á sama tíma í fyrra. Þar hefur meðal fermetraverð seldra nýbygginga lækkað hvað mest, eða um 7% milli ára, úr 670 þúsund krónum á hvern fermetra í 627 þúsund krónur.

Talning Samtaka iðnaðarins á íbúðum í byggingu frá því í vor, benti til þess að fullbúnum íbúðum sem ekki hafði verið flutt inn í hafi fjölgað talsvert. Slíkt getur verið til marks um að verr gangi að selja nýjar íbúðir en áður, eða að framboðið sé orðið nokkuð mikið miðað við eftirspurnina.

Gögn þjóðskrár um seldar íbúðir á öðrum ársfjórðungi benda hins vegar til þess að salan hafi verið nokkuð mikil.