101 Austurstræti ehf., rekstraraðili skemmtistaðarins Austur, hefur verið veitt heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar, til 21. október 2020. Þetta kemur fram í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur dagsettum 24. júlí en auglýsing þessa efnis er birt í Lögbirtingablaðinu í dag.

Málefnið verður tekið fyrir á ný þegar fyrrnefnd heimild rennur út. Aðstoðarmaður skuldara við fjárhagslega endurskipulagningu er Atli Már Ingólfsson lögmaður.