Austurríska flugfélagið Lauda Air hefur ákveðið að fljúga vikulega til Íslands í sumar, segir í tilkynningu frá félaginu.

Lauda Air, sem er hluti af flugsamstæðunni Austrian Airlines Group, mun fljúga til Íslands frá 13. júní til 15. ágúst.

Farmiðinn til Íslands mun kosta 199 evrur, sem samsvarar rúmlega 18 þúsund krónum.