Auður Capital hefur flutt skrifstofur sínar í Borgartún 29, 3.hæð.  Í tilkynningu kemur fram að fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun á árinu 2007 og telur nú tæplega 30 starfsmenn.  Auður Capital veitir þjónustu á sviði eignastýringar, fyrirtækjaráðgjafar og fjárfestinga.

Auður býður viðskiptavinum einnig að leggja fyrir í FramtíðarAuði, séreignasparnað.  Fyrirtækið skilaði hagnaði á árinu 2008, og hefur frá upphafi lagt áherslu á heilbrigða og mannlega fjármálastarfsemi þar sem markmiðið er langtímaárangur segir í tilkynningu..