Auður Capital hf. hefur sent formlegt erindi til Fjármálaeftirlitsins og skilanefndar Kaupþings þar sem óskað er eftir viðræðum um kaup Auðar Capital á Sparisjóði Kaupþings hf., dótturfélagi Kaupþings banka.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Auði Capital.

Í tilkynningunni kemur fram að fjárhagsstaða félagsins er sterk „enda er félagið alfarið fjármagnað með eigin fé.“

Forstjóri Auðar Capital er Kristín Pétursdóttir, sem starfaði áður hjá Kaupþing eða til ársins 2006. Stjórnarformaður Auðar Capital er Halla Tómasdóttir.