Auður Finnbogadóttir hefur frá og með deginum í dag sagt sig úr stjórn Icelandair Group. Auður hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga. Í tilkynningu til Kauphallar segir að Auður telji stjórnarsetu í Icelandair Group ekki samræmast hagsmunum sjóðsins.