Stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga hefur ráðið Auði Finnbogadóttur sem framkvæmdastjóra sjóðsins og hefur hún störf þann 1. desember n.k.
Auður er viðskiptafræðingur frá University of Colorado at Boulder í Bandaríkjunum (1992), og MBA frá Háskólanum í Reykjavík (2005). Hún er löggiltur verðbréfamiðlari og stóðst hæfispróf sem framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs undir lok síðasta árs.
Auður hefur um 15 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði, þ.á.m. reynslu af eignastýringu. Hún var framkvæmdastjóri MP Banka hf. frá stofnun til ársins 2003. Á árunum 2003-2009 starfaði hún sjálfstætt við ráðgjöf tengda fjármálum og eignastýringu og rak eigið fjármálafyrirtæki, A Verðbréf hf., á árunum 2006-2008. Einnig lagði hún stund á framhaldsnám og sinnti stjórnarstörfum á þessum tíma. Auður var í stjórn Landsnets hf. frá 2003-2009, í stjórn Nýja Kaupþings banka hf. frá nóvember 2008-ágúst 2009, í stjórn RÚV ohf. frá janúar 2008-janúar 2009, og var stjórnarformaður Norðlenska matborðsins ehf. frá mars 2008-apríl 2010. Auður tók við tímabundnu starfi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar haustið 2009 og því verkefni lauk farsællega með yfirfærslu á rekstri sjóðsins til LSS vorið 2010.
Auður situr í stjórn Framtakssjóðs Íslands fyrir hönd lífeyrissjóða og er í stjórn Icelandair Group.
Í fréttatilkynningu frá Lífeyrissjóði verkfræðinga segir ennfremur:
Lífeyrissjóður verkfræðinga var stofnaður í ársbyrjun 1955. Upphaflega var sjóðurinn eingöngu fyrir verkfræðinga en árið 1994 var opnað fyrir aðild annarra sérfræðinga. Í dag geta þeir orðið sjóðfélagar er lokið hafa 180 eininga BSc háskólaprófi í verkfræði og raungreinum eða hafa lokið meistara- eða doktorsgráðu í háskóla. Sjóðurinn var frumkvöðull meðal lífeyrissjóða hvað aldurstengd réttindi varðar og byggir á sjóðfélagalýðræði.
Meðalaldur greiðandi sjóðfélaga er hagstæður eða um 42 ár og elstu greiðandi sjóðfélagar eru 72 ára. Þá er örorkutíðni sjóðfélaga mun lægri en að jafnaði meðal lífeyrissjóða. Einungis 20% af iðgjöldum ársins eru greidd út í formi lífeyris. Alls greiddu 2.885 sjóðfélagar iðgjöld í sjóðinn á árinu og 3.824 áttu réttindi í sjóðnum í árslok. Hrein eign samtryggingar- og séreignardeildar var rúmlega 31 milljarður króna í árslok 2009 og hjá sjóðnum eru 6 starfsmenn auk framkvæmdastjóra.