Ný stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs hefur verið skipuð. Stjórnina skipa Hlynur Jónsson héraðsdómslögmaður LL.M., stjórnarformaður, óháður, Guðríður Arnardóttir og Ármann Kr. Ólafsson, fulltrúar bæjarstjórnar Kópavogs, og Guðrún Pálsdóttir og Ragnar Snorri Magnússon, fulltrúar sjóðfélaga.

Nýr framkvæmdastjóri sjóðsins er Auður Finnbogadóttir, viðskiptafræðingur MBA, og hóf hún störf þann 17. ágúst síðastliðinn.