Auður I fagfjárfestasjóður hefur keypt allt hlutafé IP-fjarskipta ehf sem á símafyrirtækið Tal. Seljendur félagsins eru Teymi, NBI, Hermann Jónasson og Fjallaskarð ehf. Virðing hf hafði milligöngu um viðskiptin fyrir hönd Auðar I fagfjárfestasjóðs. Félagið var boðið til sölu með auglýsingu sem birtist í fjölmiðlum þann 17. maí síðastliðinn og var öllum fagfjárfestum sem uppfylltu tiltekin hæfisskilyrði gefinn kostur á að taka þátt í söluferlinu.

Tindar verðbréf hf. önnuðust söluferli félagsins fyrir hönd seljenda og nutu ráðgjafar LOGOS lögmannsþjónustu við söluferlið. Kaupverð er ekki gefið upp og mun kaupandi taka við stjórn félagsins á komandi vikum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Auði Capital og Tindar verðbréf.