Tvö dótturfélög Landsbankans hf. á sviði eignaleigu, SP-Fjármögnun hf. og Avant hf. verða sameinuð bankanum á næstunni. Félögin hafa verið alfarið í eigu Landsbankans um nokkurt skeið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

„Tilgangur samrunans er fyrst og fremst að einfalda rekstur og bjóða viðskiptavinum upp á aukið vöruframboð og heildstæðari þjónustu. Félögin verða starfrækt í sjálfstæðri rekstrareiningu sem mun heyra beint undir bankastjóra Landsbankans," segir í tilkynningunni. Staða viðskiptavina Avant og SP-Fjármögnunar á ekkert að breytast vegna samrunans.

Tæplega sjötíu starfsmenn munu starfa í hinni nýju rekstrareiningu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun undir hvaða vörumerki hún mun starfa. Fyrirhugað er að samrunanum ljúki á haustmánuðum.

Gekk í gegnum nauðasamninga

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti nauðasamning vegna eignaleigufyrirtækisins Avant í febrúar síðastliðinum. Samningurinn fól í sér að Nýi Landsbankinn, sem er stærsti kröfu- og veðréttarhafi í Avant, taki yfir félagið og eigi 99% hlut á móti 1% hlut félagsins sjálfs.