Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt samruna fjármögnunarfyrirtækjanna Avant og SP Fjármögnunar við Landsbankann á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki. Þetta kemur fram á vef FME og þar segir jafnframt að Landsbankinn taki við öllum réttindum og skyldum fjármögnunarfyrirtækjanna og að félögin verði sameinuð undir nafni Landsbankans.