Fjármögnunarfyrirtækin SP-fjármögnun og Avant verða í dag sameinuð Landsbankanum en fyrirtækin hafa bæði verið í eigu bankans um nokkurt skeið. Samkvæmt fréttatilkynningu frá bankanum hefur samruninni verið samþykktur af Fjármálaeftirlitinu og munu fyrirtækin mynda nýtt rekstrarsvið hjá bankanum.

Landsbankinn eignaðist SP-fjármögnun árið 2009 og Avant fyrr á þessu ári.