Jólagjöfin í ár er ávaxta- og grænmetispressa. Þetta er niðurstaða sérskipaðar dómnefndar Samtaka verslunar og þjónustu sem hafði úr að velja fjölda hugmynda. Valið byggir á því að hún falli vel að smekk breiðs hóps neytenda segir í frétt SVÞ.

Að auki voru eftirtaldar þrjár forsendur hafðar til hliðsjónar:
- vara sem er vinsæl meðal neytenda
- vara sem selst vel
- vara sem fellur vel að tíðarandanum

Þetta er í fyrsta sinn sem valið fer fram á Íslandi en löng hefð er fyrir því á hinum Norðurlöndunum.