Flutningasamsteypan Avion Group hefur hlotið viðurkenningu fyrir að vera annað framsæknasta fyrtæki Evrópu á þessu ári, segir í tilkynningu frá Avion Group.

Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, tók við verðlaununum í Barcelona síðastliðinn laugardag.

?Ég tel verðlaunin vera mikinn heiður fyrir Avion Group og staðfestir markvissan öxt félagins undanfarin ár. Verðlaunin gefa okkur byr undir báða vængi og hvetja okkur til frekari sóknar en Avion Group er íslensk sókn um allan heim," sagði Magnús.

Einnig kom fram í máli Magnúsar að stefnt væri að skráningu Avion Group á hlutabréfamarkað í upphafi janúar næstkomandi.

Viðstaddir verðlaunaafhendingu í Barcelona voru meðal annarra Al Gore, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og Josep Borrell, forseti Evrópuþingsins.

Avion Group er fyrsta íslenska fyrirtækið sem nær svo ofarlega á Europe's 500 en listinn er tekinn saman af Europe's Entrepreneurs for Growth sem hafa aðsetur í Brussel. Listinn hefur verið tekinn saman á hverju ári frá 1995.

Avion Group var valið úr hópi þúsunda fyrirtækja frá 18 Evrópulöndum sem uppfylltu ströng skilyrði um mikinn og stöðugan vöxt undanfarin þrjú ár. Verðlaunin hvetja til frumkvæðis, nýjunga og stöðugrar og markvissrar sóknar á ný mið, segir í tilkynning Avion Group.