Avion Group HF, tilkynnti í dag að tilboð félagsins í allt hlutafé Atlas Cold Storage Income Trust yrði framlengt.

Tilboðið átti að renna út föstudaginn 22. september, en verður framlengt til föstudagsins 6. október 2006.

Tilboðið var upprunalega tilkynnt 3. ágúst 2006 og var sent hluthöfum Atlas þann 17. ágúst 2006. Skilmálar tilboðsins eru óbreyttir.

Tilboð Avion Group hljóðar upp á sjö kanadíska dali fyrir hvern hlut í félaginu. Heildarvirði félagsins (enterprise value) er um 574 milljónir kanadískra dala eða rúmlega 37 milljarðar króna.