Avion Group, sem rekur Air Atlanta og Excel Airways, hefur gengið frá kaupum á breska félaginu The Really Great Holliday Company (RHG). Félagið á og rekur Travel City Direct, Transatlantic Holidays og bílaleigufyrirtækið Carshop. Félagið var með 14 milljarða króna veltu á síðasta ári og mikinn vöxt á þessu ári.

Magnús Stephensen, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs Avion Group, segir þetta mjög góð kaup sem auki möguleika félagsins verulega. Miðað við veltutölur síðasta árs og ganginn á þessu ári, þá verður Avion Group komið með 125 milljarða heildarveltu á þessu ári.