Á mánudag mun Avion Group birta afkomu sína fyrir þriðja ársfjórðung en greiningardeild Glitnis gerir ráð fyrir að fjórðungurinn sé sá besti í rekstri félagsins.

Fjárhagsár Avion Group hefst í nóvember og lýkur í október. Þannig hefst þriðji ársfjórðungur 1. maí og endar í lok júlí og er fjórðungurinn annasamasti ferðamannatími ársins. Á árinu hefur Avion Group verið mjög iðið við yfirtökur og útvíkkun starfsemi á nýjum mörkuðum s.s. í Þýskalandi og á Írlandi. "Áhugavert verður að sjá hver afkoman verður á fjórðungnum en Greining gaf ekki út afkomuspá fyrir fjórðunginn en gerum við ráð fyrir að heildartekjur ársins verði um 2,1 ma.USD, EBITDA ársins verði 213 m.USD og hagnaður ársins verði um 39 m.USD," segir í Morgunkorni Glitnis.