Hrein raunávöxtun lífeyrissjóðanna, það er ávöxtun umfram verðbólgu, var 2,65% í fyrra samanborið við 0,34% á árinu 2009, samkvæmt skýrslu um ársreikninga lífeyrissjóðanna fyrir árið 2010. Skýrslan er birt á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.

Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðastliðin 5 ár var neikvæð um 1,6% og meðaltal síðustu 10 ára var 2,2%. FME segir raunávöxtun sjóðanna því fara batnandi, þrátt fyrir að margir sjóðir glími enn við eftirköst bankahrunsins.

Heildareignir lífeyrissjóðanna námu tæplega 1.910 milljörðum króna í árslok 2010 samanborið við um 1.775 milljarða í árslok 2009. Nemur aukningin um 7,6% sem samsvarar jákvæðri raunaukningu upp á 5% miðað við vísitölu neysluverðs.

Iðgjöld lífeyrissjóðanna hækkuðu um tæp 3% á milli ára eða úr 107 milljörðum króna í árslok 2009 í rúmlega 110 milljarða króna í árslok 2010. Gjaldfærður lífeyrir ásamt útgreiðslu séreignarsparnaðar var rúmlega 71 milljarður króna árið 2010 en var 76 milljarðar króna árið 2009. Útgreiðslur vegna tímabundins bráðabirgðaákvæðis námu tæpum 15 milljörðum króna árið 2010 samanborið við tæpa 22 milljarða króna árið áður.

Skýrsla um ársreikninga lífeyrissjóða 2010 .