Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) nam 6,1% árið 2010 sem jafngildir 3,4% hreinni raunávöxtun. Þetta er betri ávöxtun en árið  2009, en þá nam raunávöxtun sjóðsins 1,1%. Ávöxtun LV árið 2010 er því nær jöfn þeirri  ávöxtun og gert er ráð fyrir tryggingafræðilegu uppgjöri sjóðsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá LV. Segir að þessi jákvæða afkoma leiði til þess að lífeyrisréttindi sjóðsfélaga verða ekki skert, en þau eru að fullu verðtryggð.

310 millarða eignir

„Eignir LV jukust  um 27 milljarða á árinu og voru þær 310 milljarðar í árslok 2010 samanborið við 283 milljarða árið áður. Allir eignaflokkar sjóðsins skiluðu jákvæðri ávöxtun árið 2010 og er áhættudreifing safnsins góð og samsetning þess traust. Þannig er um 30% af eignum sjóðsins í dreifðu safni erlendra verðbréfa, 28% í innlendum ríkistryggðum skuldabréfum, 12% í safni sjóðfélagalána, önnur skuldabréf eru samtals 13% af eignum  og 13% í bankainnstæðum. Innlend hlutabréfaeign jókst nokkuð á árinu og nemur nú um 4% af eignum sjóðsins.

Það styrkir eignasafn sjóðsins að þriðjungur eigna er í dreifðu safni erlendra verðbréfa. Við gildandi gjaldeyrishöft eru möguleikar takmarkaðir að nýta slíka áhættudreifingu með eins skilvirkum hætti og æskilegt er. Aðgerðir sem styðja við afnám gjaldeyrishafta í náinni framtíð er því hagsmunamál sjóðfélaga sjóðsins,“ segir í tilkynningunni.

Úr tilkynningu:

Úrræði fyrir skuldsett heimili

Lífeyrissjóður verslunarmanna
Lífeyrissjóður verslunarmanna
© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Á síðasta ári varð sjóðurinn aðili að samkomulagi fjármálastofnana og lífeyrissjóða um úrræði fyrir skuldsett heimili og einstaklinga sem er mikilvægur liður í að koma til móts við skuldsett heimili og um leið að styrkja grundvöll lánasafnsins til lengri tíma litið. Færð hefur verið sérstök varúðarfærsla vegna sjóðfélagalána.

Fjárfestingastefna

Stjórn LV hefur nýlega samþykkt fjárfestingastefnu sjóðsins fyrir árið 2011 sem grundvallast á lögum um lífeyrissjóði og samþykktum sjóðsins. Þar segir m.a. að:

„LV er fagfjárfestir sem hefur að höfuðmarkmiði að hámarka eignir og réttindi sjóðfélaganna og skal það sjónarmið lagt til grundvallar við fjárfestingar og eignastýringu á verðbréfasafni sjóðsins. Fjármagn sjóðsins skal ávaxtað með hliðsjón af þeim kjörum, sem best eru boðin á hverjum tíma, að teknu tilliti til varúðarsjónarmiða, áhættu og verðtryggðra langtímaskuldbindinga sjóðsins.“

Sjóðfélagar

Virkir sjóðfélagar í LV eru rúmlega 32 þúsund en 47 þúsund sjóðfélagar greiða árlega  iðgjöld til sjóðsins sem nema um 16 milljörðum.  Um tíu þúsund sjóðfélagar fengu greiddan lífeyri frá LV á síðasta ári, alls 6,8 milljarða.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna er mikilvægur í íslensku samfélagi því alls eiga um 128 þúsund sjóðfélaga réttindi í sjóðnum.“