Vænt skuldabréfaútgáfa Lánamála ríkisins á þessu ári er í takt við væntingar IFS Greiningar frá í september í fyrra. IFS segir í Morgunpósti sínum í dag að framboð fyrirtækjaskuldabréfa hafi aukist í fyrra og megi búast við að framboðið haldi áfram að aukast.

Þá segir IFS að eftirspurn eftir skuldabréfum hafi minnkað og sé gert ráð fyrir litlu umframboði skuldabréfa á þessu ári. Bent er að frá hruni hafi verið töluverð umframeftirspurn eftir skuldabréfum sem hefur þrýst ávöxtunarkröfum skuldabréfa niður.