British Airways (BA) neyðist til þess að fresta hundruða áætlaðra flugferða í næstu viku vegna fyrirhugaðs verkfalls flugliða og flugstjóra.

Talsmaður flugfélagsins segir að ekkert verði flogið frá Heathrow-flugvelli í London á þriðudag og miðvikudag og hvorki verður flogið innanlands né til og frá Evrópu frá Gattwick-flugvelli í sömu borg.

Talsmaður BA segir að aðstandendur félagsins séu ákveðnir í að ná samkomulagi við flugliða og flugmenn fyrir næsta þriðjudag en vilji gera ferðamönnum kleift að gera aðrar ráðstafanir, komi til verkfalls.