Tæknifyrirtækin Baader og Skaginn 3X hafa gengið frá samningum um kaup Baader á meirihluta í Skaganum 3X.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum. Kaupverð er ekki gefið upp.

Þar segir að viðskiptin séu háð venjubundnum fyrirvörum um samþykki opinberra aðila. Ráðgert er að þeim fyrirvörum verði aflétt í ársbyrjun 2021.

„Samstarf þetta er okkur mikið gleðiefni og ánægjulegt að geta í sameiningu boðið viðskiptavinum okkar heildstætt vöruframboð af framúrskarandi lausnum við vinnslu sjávarafurða“ segir Petra Baader, forstjóri Baader, í tilkynningunni.

„Með því að samtvinna áratuga sköpun, þekkingu og reynslu Baader við okkar sérþekkingu byggða á samstarfi og nálægð við öflugan sjávarútveg munum við efla þróun og nýsköpun til muna“ segir Ingólfur Árnason, forstjóri Skagans 3X.

Ingólfur mun áfram gegna starfi forstjóra Skagans 3X og mun njóta liðsinnis núverandi stjórnendateymis fyrirtækisins. Að uppfylltum fyrirvörum samningsins mun sölu- og markaðsstarf Skagans 3X verða samþætt hinu öfluga og víðfeðma sölukerfi Baader.

Þar til fyrirvörum samnings verður aflétt mun núverandi starfsemi fyrirtækjanna haldast óbreytt.

Hér má leita frekari upplýsinga um Skaginn 3X.