Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, Gunnþór Ingvason, bar fram óskir um leiðbeiningar frá stjórnendum Samherja, um það hvernig mætti blekkja Grænlendinga til að komast yfir veiðiheimildir og velvild. Fréttablaðið greinir frá þessu.

Í tölvupósti til Aðalsteins Helgasonar, Jóhannesar Stefánssonar og manns innan Samherja sem hefur netfangið [email protected], sem Fréttablaðið birtir, segir: „Sælir félagar. Þannig er mál með vexti að vinir okkar í Grænlandi, Henrik Leth, var að biðja mig að setja niður fyrir sig hvað þyrfti til í fjárfestingum, veiðum, vinnslu og hafnarmannvirkjum ef menn myndu vera setja upp fiskimjöls og uppsjávarverksmiðju í Ammasalik austurströnd Grænlands.“

„Hann er ekki að hugsa um að setja neitt upp, heldur eru einhverjir heimamenn í Grænlandi með einhverja með sér í því að reyna ná kvótum og goodwill af stjórnvöldum með því að þykjast vera fara byggja upp á Austur Grænlandi. Eigið þið ekki tilbúna einhverja svona punkta þó svo að þeir eigi við um Afríku?,“ segir Gunnþór jafnframt í póstinum.

Þá svarar Jóhannes Stefánsson: „Það er kannski spurning um að taka frá Marokkó, hvað segirðu um það?“ spyr spyr hann fyrrnefndan mann með netfangið [email protected].

„Gunnþór, ertu að leitast eftir einvherju ýtarlegu eða bara í kynningarformi?“ spyr Jóhannes svo Gunnþór, sem svarar af bragði: „Nei, bara punktum hvað þarf.“