Breytt hefur verið um nafn á einkahlutafélaginu Baðhúsi Lindu. Félagið heldur utan um 100% eignarhlut Lindu Pétursdóttur í samnefndri heilsu- og líkamsræktarstöð, þ.e. Baðhúsinu við Brautarholt í Reykjavík.

Linda stofnaði líkamsræktarstöðina árið 1994. Hún stofnaði svo félagið sem nú heldur utan um reksturinn í júní árið 2009. Félagið hét sem fyrr segir Baðhús Lindu en var breytt nú í febrúar samkvæmt tilkynningu í Lögbirtingablaðinu.

Baðhús Lindu hagnaðist um rúmar 11,2 milljónir króna árið 2011 samkvæmt síðasta birta uppgjöri félagsins. Skuldir þess námu á sama tíma 37 milljónum króna. Eignir félagsins námu tæpum 28,7 milljónum króna. Hrein eign var við lok ársins neikvæð um rétt rúmar 8,3 milljónir króna.