Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og vinstriflokkarnir tapa fylgi samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Helstu breytingarnar á fylgi flokka frá síðustu mælingu fyrirtækisins, eru að Vinstri græn og Samfylkingin tapa fylgi.

Fylgi Vinstri grænna lækkar um þrjú prósentustig milli mælinga, en næstum 11% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um tvö prósentustig en nær 14% segjast myndu kjósa flokkinn nú.

Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,3-1,2 prósentustig. Næstum 23% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 13% Miðflokkinn, 12% Viðreisn, rúmlega 11% Pírata, tæplega 9% Framsóknarflokkinn, rúmlega 4% Flokk fólksins og ríflega 3% Sósíalistaflokk Íslands.

Liðlega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um þrjú prósentustig milli mælinga og segjast tæplega 47% þeirra sem taka afstöðu styðja stjórnina.