Bæjarráð Kópavogs samþykkti í morgun að leggja til við bæjarstjórn að gengið yrði til samninga við Stólpa ehf. vegna sölu á Fannborg 2,4, og 6. Húseignir bæjarins að Fannborg 2, 4 og 6 voru auglýstar til sölu í ágústlok og var gefinn frestur til að skila tilboðum til 12. október. Fjögur tilboð bárust.

Tilboð Stólpa ehf. hljóðar upp á 1.050.000.000 kr. einn milljarð og 50 milljónir. Bæjarskrifstofur Kópavogs hafa verið til húsa í Fannborg 2,4 og 6, en í Fannborg 2 var áður til húsa Kópavogsleikhúsið og Kópavogsbíó, sem var kvikmyndahús rekið af bænum.

Þorri hluti starfseminnar er nú fluttur að Digranesvegi 1, sem er húsnæði sem byggt var ofan á gjána sem þorri umferðar frá norðri til suðurs í gegnum höfuðborgarsvæðið fer í gegnum.