Cal-Nev-Ari, 350 manna bær í Nevada, er til sölu. Uppsett verð er 8 milljónir dollara, jafnvirði eins milljarðs króna. Pakkinn inniheldur spilavíti, veitingastað, mótel, verslun og hjólhýsagarð ásamt 2,1 ferkílómetra af landsvæði sem ekki hefur verið byggt á.

Bærinn vars stofnaður árið 1965 af konu að nafni Nancy Kidwell og eiginmanni hennar. Kidwell, sem nú er 78 ára, á öll fyrirtæki í bænum og hefur 27 manns í vinnu. Kidwell setur nokkra fyrirvara við söluna. Flugvöllur bæjarins verður að vera áfram í rekstri undir nafninu Kidwell Airport og bærinn verður að halda nafni sínu í minnst 30 ár.

Uppsett verð var upphaflega 17 milljónir dollara árið 2010, en bærinn var tekinn úr sölu þar sem fasteignaverð í Nevada lækkaði mikið í kreppunni. Bærinn var síðan settur aftur í sölu á lægra verði í febrúar.