Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti samhljóða bókun þar sem kallað er eftir því að rekstur kísilmálmverksmiðju United Silicon verði stöðvaður á meðan unnið er að nauðsynlegum umbótum.

Í bókuninni segir að hluti íbúa Reykjanesbæjar hafi ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum og vanlíða vegna mengunar frá verksmiðjunni. „„Kísilmálmverksmiðja Sameinaðs sílikon hf. hefur nú verið starfrækt í 9 mánuði án þess að tekist hafi að stöðva mengun frá verksmiðjunni en mengun sem þessi gengur þvert á forsendur starfsleyfis verksmiðjunnar,“ er enn fremur tekið fram í bókuninni.

Einnig er tekið fram að í samtölum við forsvarsmenn fyrirtækisins hefur komið fram að nú liggi fyrir listi yfir atriði sem enn þarfnast lagfæringar og úrbóta sem taka mun vikur eða jafnvel mánuði að hrinda í framkvæmd. „Að óbreyttu má því búast við áframhaldandi mengun frá verksmiðjunni með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa,“ segir í bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar.