Velferðarráðuneytið þarf að leita leiða til að bæta aðgang Íslendinga að stærri lyfjamörkuðum til að draga úr lyfjakostnaði ríkisins. Þá þarf ráðuneytið að skilgreina hvernig meta skuli áhrif og árangur af breyttri lyfjanotkun. Þetta kemur fram í ítrekun á vef Ríkisendurskoðunar í dag.

Árið 2011 birti Ríkisendurskoðun skýrslu um þróun lyfjakostnaðar hér á landi á árunum 2008–2010. Þar kom m.a. fram að aðgerðir íslenskra stjórnvalda á tímabilinu hefðu skilað verulegum árangri við að halda niðri lyfjakostnaði ríkisins. Í því sambandi hefði ákvörðun um að einskorða greiðsluþátttöku ríkisins í nokkrum lyfjaflokkum við ódýrustu lyfin vegið þungt. Þar sem íslenskur lyfjamarkaður væri lítill í samanburði við önnur norræn ríki hefðu neytendur hér þó takmarkaðri aðgang að ódýrum lyfjum, einkum samheitalyfjum, en neytendur þar.

Í skýrslunni beindi Ríkisendurskoðun alls fjórum ábendingum til velferðarráðuneytisins:

  • Vinna þarf að því í samstarfi við stjórnvöld annarra ríkja að bæta aðgang Íslendinga að stærri lyfjamörkuðum til að draga úr lyfjakostnaði hérlendis.
  • Leita þarf leiða til að fjölga lyfjum á innlendum markaði hér í samvinnu við stjórnvöld annarra ríkja.
  • Skilgreina þarf hvernig meta skal áhrif og árangur af breyttri lyfjanotkun í kjölfar aðgerða stjórnvalda til að draga úr lyfjakostnaði. Vitað er að slíkar breytingar geta haft aukaáhrif í för með sér og hugsanlega valdið auknum kostnaði annars staðar í heilbrigðiskerfinu þegar til lengri tíma er litið.
  • Tryggja þarf að útboð á lyfjum leiði ekki til fákeppni. Til dæmis geti stjórnvöld stuðlað að virkri samkeppni með því að taka ekki ávallt einungis lægsta tilboði heldur semja jafnframt við aðra bjóðendur.