Leikfélag Reykjavíkur hagnaðist um 10 millj­ónir króna í fyrra. Það er mikil aukning frá því árið 2014 þegar hagnaðurinn nam um 600 þúsundum. Handbært fé frá rekstri var 66 milljónir króna.

Leikfélagið átti eignir fyrir um 184 milljónir um síðustu áramót, en skuldaði 125 milljónir. Handbært fé leikfélagsins nam 104 millj­ónum og tvöfaldaðist milli ára. Kristín Eysteinsdóttir er leikhússtjóri Borgarleikhússins.