Nokkrar breytingar urðu á stjórn Medicare Flögu á hluthafafundi félagsins í morgun. Tveir stjórnarmenn Medcare Flögu hf. höfðu sagt stjórnarstarfi sínu lausu, þeir Peter Farrell og Sigurjón Kristjánsson. Ágúst Guðmundsson og Lýður Guðmundsson voru kosnir í stjórn í þeirra stað.


Stjórn eftir breytingar skipa: Bogi Pálsson, stjórnarformaður, Ágúst Guðmundsson, Eggert Dagbjartsson, Lýður Guðmundsson og Rögnvaldur Sæmundsson

Eftir breytingar sitja í stjórn einungis óháðir stjórnarmenn sem ekki starfa hjá félaginu og er það í samræmi við þá stefnu sem stjórn félagsins hefur mótað um stjórn og stjórnarhætti.