Stjórn Exista hf. samþykkti á fundi sínum í dag að hefja viðræður við einkahlutafélag í eigu Ágústs Guðmundssonar og Lýðs Guðmundssonar um kaup Exista á öllu hlutafé í Kvakki ehf. og í framhaldi af því að nýta heimild hluthafafundar Exista frá 30. október sl. um að auka hlutafé í félaginu um 50 milljarða hluta til greiðslu fyrir hluti í Kvakki ehf.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Exista.

Þar kemur fram að tilgangur Kvakks ehf. er varsla handbærs fjár. Ofangreindar viðræður fela í sér að Ágúst og Lýður Guðmundssynir leggi handbært fé Kvakks ehf. til Exista í skiptum fyrir nýtt hlutafé í félaginu.

„Markmiðið með viðræðunum er að styðja við eiginfjárgrunn Exista og að auka handbært fé og styrkja frekar stöðu félagsins í viðræðum sem nú standa yfir við fjármálastofnanir og lánardrottna,“ segir í tilkynningunni.

Auk þess samþykkti stjórn Exista að boða til hluthafafundar eigi síðar en 31. desember 2008 þar sem lögð verður fram tillaga um niðurfærslu á hlutafé félagsins. Dagsetning og dagskrá hluthafafundar verður auglýst síðar.