Nú rétt í þessu var tilkynnt um að Bakkavör Group hafi bætt við hlut sinn í breska matvælaframleiðandanum Geest plc. Keypti félagið nú 4,45% hlut og á nú samtals 14,72% hlut í félaginu. Gengi Geest lækkaði þó í dag um 1,85% og stendur núna í 557 pensum á hlut. Líkt og í fyrri tilkynningunni frá félaginu var kaupverðið ekki gefið upp og telur Greiningardeild Landsbankans það miður.

Að mati Greiningardeildar Landsbankans er þetta rökrétt framhald af fyrri kaupum Bakkavarar í Geest og má gera ráð fyrir að Bakkavör muni áfram bæta við sig í félaginu. Eykur þetta einnig líkurnar á því að yfirtaka/sameining sé í farvatninu. Samkvæmt reglum kauphallarinnar í London má Bakkavör ekki yfirtaka félagið á næstu sex mánuðum.