„Eins og tilkynnt var í 9 mánaða uppgjöri félagsins í október síðastliðnum þá á félagið umtalsverða innstæðu hjá Nýja Kaupþingi banka. Innstæðan er að fullu tryggð af Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi auk þess að forsætisráðuneytið og Seðlabanki Íslands hafa staðfest að svo sé."

Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu frá Bakkavör Group sem send var út rétt í þessu.

Í yfirlýsingunni segir að umfjöllun fjölmiðla undanfarið varðandi matvælaiðnaðinn hafi komið af stað vangaveltum um stöðu Bakkavör Group og þá sérstaklega fjármögnun félagsins.

Í því ljósi vilji stjórn Bakkavarar koma upplýsingum á framfæri.

Í yfirlýsingunni segir einnig:

„Félagið hefur getað leyst út hluta innstæðunnar en stjórn félagsins er þófullviss að þær 140 milljónir punda sem eftir eru fáist leystar út að fullu ípundum þó ekki sé ljóst hvenær það verði. Í ljósi þessa hefur Bakkavör haft frumkvæði að viðræðum við aðila að alþjóðlegusambankaláni félagsins og hefur Bakkavör fengið ráðgjafa félagsins til langstíma, NM Rothschild & Sons Limited (NMR), til þess að vera ráðgefandi í þeimviðræðum.

Jafnframt á Bakkavör í viðræðum við eigendur skuldabréfa félagsins sem gefinvoru út á árunum 2003 til 2005 í þeim tilgangi að framlengja gjalddagabréfanna. Grunnrekstur Bakkavarar er sterkur. Rekstur félagsins er arðbær, sjóðsmyndunsterk og félagið nýtur góðra tengsla við bæði viðskiptavini og birgja og eruviðskiptakjör milli aðila eðlileg. Þar sem félagið hefur á undanförum árum notið góðs stuðnings fjármálastofnanaog eigenda skuldabréfa félagsins þá er stjórn félagsins þess fullviss aðviðræðurnar muni skila góðum árangri.“

Bakkavör mun birta niðurstöður ársuppgjörs 12. mars 2009 þar sem nánari skil verða gerð á stöðu ofangreindra mála.