Stjórn Bakkavör Group hf. gerir að tillögu sinni að aðalfundur félagsins fyrir árið 2008 samþykki að greiddur verði 55% arður af nafnvirði hlutafjár sem jafngildir 0,55 krónum á hlut, eða sem samsvarar 1.187 milljónum króna.

Þetta kemur fram í tillögum stjórnarinnar fyrir aðalfund félagsins.