Bakkavör Group hefur keypt 48% hlut í matvæla- og drykkjarvöruframleiðandanum Gastro Primo í Hong Kong, og á kauprétt að eftirstandandi 52% hlut árið 2010. Kaupverðið er trúnaðarmál. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bakkavör Group.

Þar kemur fram að Gastro Primo sérhæfir sig í framleiðslu á hágæða matvælum og drykkjarföngum fyrir veitingahús og veisluþjónustur, auk stórmarkaða í Hong Kong og Macau. Félagið framleiðir m.a. tilbúna rétti, súpur, sósur, salöt, samlokur, niðurskorna ávexti og grænmeti, auk ávaxtasafa og hristinga (e. smoothies).

Fyrirtækið var stofnað árið 1990 og er með um 170 starfsmenn í  Hong Kong og Macau. Velta félagsins árið 2007 nam rúmlega 770 milljónum króna (um 11 milljónum Bandaríkjadala).

Gastro Primo verður fært í reikninga félagsins sem hlutdeildarfélag frá kaupdegi en kaupin munu hafa óveruleg áhrif á afkomu félagsins.

„Það er ánægjulegt að tilkynna um áframhaldandi uppbyggingu Bakkavarar í Kína með fjárfestingu félagsins í Gastro Primo, en matvælamarkaðurinn í Hong Kong er einn sá þróaðasti í Suð-Austur Asíu. Gastro Primo er vel rekið fyrirtæki, með reynslumikla stjórnendur, traust viðskiptasambönd og góða möguleika á  vexti í framtíðinni. Við sjáum tækifæri til samvinnu á milli Gastro Primo og fyrirtækja okkar í Kína sem mun styðja enn frekar við vöxt félagsins í Kína,“ segir Ágúst Gudmundsson, forstjóri í tilkynningunni.