Bakkavör Group hefur styrkt starfsemi sína í Bretlandi enn frekar með kaupum á breska matvælafyrirtækinu Welcome Food Ingredients Ltd. sem framleiðir bragðefni og sósur til matvælaframleiðslu.
Kaupin voru fjármögnuð úr sjóðum félagsins en kaupverðið er trúnaðarmál.

Welcome Food Ingredients var stofnað árið 1994 og sérhæfir sig í notkun ferskra og þurrkaðra hráefna við framleiðslu bragðefna og blandna á borð  við sósur, deig og þykkni fyrir matvælaiðnaðinn. Fyrirtækið er staðsett í
Nottinghamshire í Bretlandi og eru starfsmenn 115 talsins.

Welcome Food Ingredients verður hluti af Bakkavör Group frá kaupdegi en kaupin munu hafa óveruleg áhrif á afkomu félagsins á þessu ári.