Bakkavör Group hf. hefur verið veitt heimild til að leita nauðasamnings við kröfuhafa sína í samræmi við fyrri tilkynningu félagsins í dag en en kröfuhafar sem hafa yfir um 80% af skuldum félagsins að ráða hafa mælt með nauðasamningi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bakkavöru Group en þar kemur jafnframt fram að Brynjar Níelsson hefur verið skipaður umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum félagsins.

Sjá nánar í tengdri frétt hér að neðan.