Bakkavör hefur hækkað um 11,79% það sem af er degi í Kauphöll Íslands. Bréf Eimskipafélagsins og Færeyjabanka hafa hækkað lítillega og Atlantic Petroleum hefur lækkað um rúm 5%.

Heildarvelta með bréfin nemur einungis rúmum 16 milljónum króna.

Lítil hreyfing er á gengi krónunnar og sveiflast gengisvísitalan í kringum 250 stig. Dollarinn stendur nú í 147,7 krónum, pundið er 217,9 krónur og evran 187,5.