Bakkavör Group hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna vöruinnköllunar í Bretlandi. Hún er svohljóðandi:

„Bakkavör Group hefur innkallað tvær tegundir af hummus-ídýfum (e. houmous) í varúðarskyni í Bretlandi, eftir að salmonella fannst í sýni við reglubundið innra eftirlit.

Mikil áhersla er lögð á öryggis- og gæðamál hjá félaginu og átti Bakkavör frumkvæðið að innkölluninni, en hún er umfangslítil. Um er að ræða einangrað tilvik sem mun ekki hafa áhrif á framleiðslu félagsins á hummus-ídýfum né öðrum vörum sem félagið framleiðir fyrir viðkomandi viðskiptavini.

Bakkavör Group er stærsti framleiðandi ferskra tilbúinna matvæla í Bretlandi og hefur umfang félagsins vaxið gríðarlega undanfarin ár. Félagið framleiðir til að mynda yfir 6.000 vörur á hverjum degi, er með starfsemi í 9 löndum og 20.000 starfsmenn. Engar vörur frá Bakkavör eru seldar á Íslandi.“