Bakkavör Group hefur styrkt stöðu sína enn frekar í Bretlandi með kaupum á breska matvælafyrirtækinu Exotic Farm Produce sem selur ferskt óskorið grænmeti sem og fersk tilbúin matvæli. Kaupin voru fjármögnuð úr  sjóðum félagsins en kaupverðið er trúnaðarmál. Þetta kemur fram í frétt frá félaginu.

Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á heilu úrvalsgrænmeti og framleiðslu á fersku niðurskornu grænmeti, ýmiskonar salötum ásamt ferskum tilbúnum réttum og meðlæti. Viðskiptavinir Exotic Farm Produce eru leiðandi stórmarkaðir
Bretlands. Fyrirtækið er staðsett í Lincolnshire í Bretlandi og er með um 370 starfsmenn.

Exotic Farm Produce Group verður hluti af Bakkavör Group frá kaupdegi en kaupin munu hafa óveruleg áhrif á afkomu félagsins á þessu ári.

"Exotic Farm Produce fellur vel að rekstri þeirra fyrirtækja sem fyrir eru í eigu Bakkavör Group og koma kaupin til með að styrkja stöðu okkar enn frekar á sviði óskorins grænmetis sem og ferskra tilbúinna matvæla í Bretlandi. Þetta er vel rekið fyrirtæki með góðar horfur um framtíðarvöxt," segir Ágúst Gudmundsson forstjóri Bakkavarar Group.