Bakkavör Group [ BAKK ] tilkynnti í gær um kaup á franska dótturfyrirtækinu Fram Foods hf., Fram Foods S.A., nú Bakkavör Traiteur France.

Fyrirtækið er staðsett í Chevilly nálægt París, starfsmenn eru 25 og framleiðir félagið ídýfur og brauðvörur fyrir franska stórmarkaði.

„Þessi kaup falla vel að núverandi starfsemi Bakkavör Group í Frakklandi og gefa félaginu færi á að þróa frekar vöruúrval sitt af ferskum tilbúnum matvælum á svæðinu," segir í uppgjörsgögnum Bakkavarar fyrir annan ársfjórðung.