Bakkavör Group hefur keypt 445,000 hluti í Geest Plc. sem samsvarar 0,6% af útgefnu hlutafé í félaginu. Samtals á því Bakkavör Group 11,420,124 hluti í Geest Plc. sem er 15,32% af útgefnu hlutafé í félaginu.

Í tilkynningu sem félagið sendi frá sér við upphaf kaupanna í Geest kom fram að Bakkvör hefði ekki í hyggju að yfirtaka félagið að sinni og gæti minnkað eða aukið hlut sinn í framtíðinni. Félagið hefur svigrúm samkvæmt reglum London Stock Exchange til þess að auka hlut sinn upp í 30% en getur ekki farið yfir það hlutfall á næstu sex mánuðum.