Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:50 í 3.015 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,5% í gær og hélt áfram að lækka við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en aðeins eitt félag, Össur hefur hækkað í morgun. Þá hefur Bakkavör lækkað um 21,7% og Eik banki um 15,8%.

Í fyrradag voru viðskipti með fjármálafyrirtæki stöðvuð af fjármálaeftirlitinu og hafa enn ekki verið leyfð á ný.

Velta með hlutabréf er rúmar 200 milljónir en þar af eru tæpar 86 milljónir með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir rúmar 57 milljónir með bréf í Bakkavör en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.